Ljósmyndastúdíó ÁLKA

Í félagsaðstöðu klúbbsins er vel búið ljósmyndastúdíó, sem félagar geta fengið afnot af gegn vægu gjaldi.
Allir skráðir og skuldlausir félagar geta bókað tíma í stúdíóinu í bókunardagatalinu. 

Hafðu samband við einhvern úr stjórninni eða sendu póst á alka@alka.is ef þú hefur ekki fengið aðgang að dagatalinu til að bóka tíma.

Ef viðkomandi er að bóka stakan tíma og er ekki með afsláttarkort þarf að greiða stúdíógjaldið með því að leggja það inn á reikning klúbbsins
565-26-4249, kt. 701195-2059, og fá afhenta lykla hjá Hafdísi formanni (866-3383) eða Val gjaldkera (895-7979).

Umgengnisreglur:
  • Félagar eru beðnir að ganga vel um húsnæði og tækjabúnað. Laga til og þrífa að lokinni notkun.
  • Nánari reglur og leiðbeiningar hanga uppi á vegg í stúdíóinu.

Gjaldskrá – gildir frá 5. apríl 2024:

Hver stakur tími (allt að 2 klst.) kostar 2.500 krónur.

Hægt er að kaupa þrenns konar afsláttarkort sem gilda í 12 mánuði
  • Brons – kostar 10.000 krónur og gildir fyrir 5 skipti
  • Silfur – kostar 15.000 krónur og gildir fyrir 10 skipti
  • Gull – kostar 25.000 krónur og gildir fyrir 25 skipti
Ath. að hver einstaklingur getur aðeins bókað stúdíóið í 4 klst. á dag að hámarki. Þó er leyfilegt að bóka áframhaldandi tíma til viðbótar þessum 4 klst., ef stúdíóið er laust og sú viðbótarbókun er gerð þann sama dag en ekki fyrirfram.

Stúdíóið - yfirlit yfir bókanir

Leit