ÁLKA
Áhugaljósmyndaraklúbbur Akureyrar 

Fundir - Fræðsla - Ferðir  ...og margt fleira! 

Félagið er opið öllu áhugafólki um ljósmyndun og engar kröfur eru gerðar um tækjabúnað eða þekkingu til að geta verið með.

Hvað er á döfinni?

Ýmsir viðburðir eru haldnir reglulega, bæði til fróðleiks og skemmtunar.

Félagar í ÁLKA geta fengið afnot af ljósmyndastúdíói klúbbsins.

Næst: Vorferð aflýst

Sunnudaginn 1. júní ætluðum við að fara í ljósmyndaferð. Ferðinni átti að vera heitið til Húsavíkur, þaðan á Þeistareyki og endað í Mývatnssveit. Vegna lítillar þátttöku neyðumst við til að slá ferðina af.

Félagsstarfið

Félagsstarfið er fjölbreytt. Auk almennra funda með myndasýningum, spjalli og fjölbreyttum viðfangsefnum er gjarnan farið í ljósmyndaleiðangra þegar færi gefst.

Ljósmyndastúdíó ÁLKA

Í félagsaðstöðu klúbbsins er vel búið ljósmyndastúdíó, sem félagar geta fengið afnot af gegn vægu gjaldi. Allir skráðir og skuldlausir félagar geta bókað tíma í stúdíóinu.
Leit