Sæl öllsömul. Við höfum yfirleitt byrjað vetrarstarfið með Scott Kelby göngu og er hún sett á morgun (laugardaginn 3. október).
Við höfum ekki alltaf verið formlegir þátttakendur og það verður að vera svo líka þetta árið. Við erum líka sein til verksins og ég viðurkenni það.
En ég vil hvetja vini eða ættingja að hittast núna um helgina, mynda litla hópa og eyða deginum saman (laugardeginum eða sunnudeginum) í gönguferðir, myndatökur og að eignast nýja vini. Hvaða myndavél sem er virkar, DSLR, spegillaus myndavél eða síminn þinn.
Við getum tekið með okkur hundinn eða köttinn í gönguferðina og leikið okkur að mynda uppáhalds dýrið okkar, fjölskylduna okkar, börnin og barnabörnin okkar, vinina okkar eða bara húsið sem verður á vegi okkar.
Förum út um helgina og tökum hversdagslegar myndir, óvenjulegar myndir, dimmar myndir og bjartar myndir.
Leikum okkur núna um helgina og sýnum afraksturinn hér þegar næsta vika byrjar.
Vetrarstarfið er hafið!
kv. Hilmar Friðjónsson

