Það hefur verið árviss viðburður (því sem næst) að hefja vetrarstarfið á Scott Kelby ljósmyndagöngu. ÁLKA hefur verið eini íslenski hópurinn sem hefur tekið þátt í þessari göngu og er eindreginn vilji okkar að við höldum henni áfram.
Gangan verður laugardaginn 4. október nk.
Mæting verður kl 11:00 við Norðurtorg (til að sameinast í bíla) og verður ferðinni heitið í Hálsaskóg (rétt norðan við Akureyri), enda verður skógurinn þá í miklum haustbúningi og ættu litirnir að vera ægifagrir.
Upp úr kl 13 ætlum við að heimsækja hjónin Gunnar og Maríu sem reka Husky hundarækt í nágrenni við Hálsaskóg og hver veit nema hann lumi á einhverri fyrirsætu (af hundakyni) sem við fengjum að mynda.
Gert er ráð fyrir að göngunni verði lokið um kl 14:00 og verður þá snúið heim á leið (á Norðurtorg) og ætla þeir sem vilja að borða saman á Saffran til að setja lokapunkt á gönguna.
Góð ráð: Klæðum okkur að sjálfsögðu miðað við veður og tökum með okkur þær græjur sem okkur langar að prófa í göngunni. Gaman er að gera tilraunir í góðra vina hópi en ef menn vilja vera hefðbundnir í sínum myndum þá er það einnig velkomið.
Góðar kveðjur,
Stjórn ÁLKA

