Netfundur 25. febrúar kl. 20:00

Netfundur 25. febrúar kl. 20:00

25. febrúar - Workshop/fræðsluspjall.

Staður: Á netinu - Google Meet (tengill á fundinn verður settur inn á Facebook og sendur í tölvupósti til félaga).

Tími: kl. 20:00.

Í miðjum Covid faraldrinum áttum við nokkra fundi á netinu og gekk það mjög vel. Við viljum prófa þetta form aftur.

Líklegast er að notast verði við Google Meet og tengill á fundinn verður væntanlega birtur daginn fyrir fund.

Þetta er hugsað sem workshop/spjall þar sem Hilmar Friðjónsson leiðir fundinn og mun fara í nokkur atriði í Lightroom - en það geta allir lagt í púkkið og er mönnum frjálst að ræða annan hugbúnað líka.

Ef þú hefur einhverjar hugleiðingar eða spurningar þá endilega skráðu þær hér í athugasemdum.

Engin ummæli enn
Leit