Við ætlum að hafa mont-kvöld fimmtudagskvöldið 20. nóvember - þar sem við komum með græjurnar okkar til að sýna og sjá aðra.
Spjalla saman um hvað við erum að gera með þeim og sýna þá líka afraksturinn (prentanir eða annað áhugavert).
Viljum við hvetja meðlimi að koma með þær græjur sem þeir eru að nota (myndavélar, linsur, þrífætur, ljós, filtera, aukahluti af öllum stærðum og gerðum og raunar allt milli himins og jarðar).
Komið með gamalt dót og nýtt dót og eigum saman kvöldstund þar sem við spjöllum um tækin okkar og hvernig við notum þau og fáum hugmyndir að okkar næstu græju 🙂
Viðburðurinn verður í stofu M01 (salurinn sem við höfum verið í áður) og er gengið inn að vestanverðu.
Hilmar verður kominn upp í VMA hálftíma fyrr ef menn vilja koma fyrir einhverjum græjum í tíma fyrir hittinginn.
Hlökkum til að sjá ykkur.

