Ljósmynda- og fjölskylduferð til Hríseyjar - Vorferð 2026

Ljósmynda- og fjölskylduferð til Hríseyjar - Vorferð 2026

Laugardaginn 30.05.2026, kl. 9.30 – frjálst

ÁLKA boðar til vorferðar út í Hrísey laugardaginn 30. maí 2026. Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna og taka með vini og/eða ættingja, börn og/eða barnabörn og njóta útivistar á þessari fallegu eyju.

Við hittumst á Árskógssandi og tökum „9 ferðina“ með Hríseyjarferjunni Sævari, sem leggur af stað klukkan 9.30. Gott að fara frá Akureyri klukkan 8:45 Það tekur um hálftíma að keyra frá Akureyri til Ársskógssands og siglingin tekur 15 mínútur

Á áfangastað byrjum við göngu saman um þorpið. Um klukkan 11 fáum við okkur smá hressingu. Boðið verður upp á smá kolvetni og svalandi drykki en fólk er hvatt til að taka með eitthvað nesti líka.

Eftir það er frjáls tími og fólk tekur bara ferjuna til baka þegar því hentar en hún gengur á 2ja tíma fresti, sjá nánar hér: https://www.hrisey.is/is/thjonusta/hriseyjarferjan-saevar

Hríseyjarbúðin er opinn kl.12 - 17

Sundlaugin er opinn 13 - 16

Flott leiksvæði fyrir börnin

Frispígolfvölur

Í Hrísey er mikið um myndefni. Fallegt landslag, litrík hús, sjórinn, bátar, dráttarvélar, fjölbreytt fuglalíf og margt annað

Verð á ferjumiðum, fram og til baka:

· 0 – 11 ára 0 kr.

· 12 – 15 ára 1.000 kr. (og eldri borgarar og öryrkjar)

· 16 – 66 ára 2.000 kr.

Fjölmennum!

Engin ummæli enn
Leit