Sælir ágætu félagar,
Það er hefð að bjóða upp á jólafund í byrjun desember og það verður engin undantekning þetta árið. Við ætlum að hittast miðvikudaginn 2. desember kl 19 í húsi Ferðafélags Akureyrar, í Strandgötu 23.
Við höfum verið þarna í góðu yfirlæti undanfarin ár og átt skemmtilegan tíma saman.
Vil ég biðja alla sem vilja sýna okkur myndir sem teknar voru á þessu ári að senda þær á póstfangið hilmar.fridjonsson@vma.is Legg ég til að hver aðili sendi 5 myndir en þetta hámark hefur oftar en ekki verið brotið af mér og öðrum þannig að ég sé ekkert að því að þær geti verið eitthvað fleiri (en ekki fylla pósthólfið mitt af tugum mynda :) ).
Einnig verður hægt að koma með myndirnar á usb kubbi.
Endilega komið með eitthvað góðmeti til að maula á en því miður getur Sigurgeir ekki verið með okkur á fundinum til að hita súkkulaðið þar sem hann þarf að fara í aðgerð í Reykjavík á þessum degi.
Við munum því líklega bjóða upp á kaffi með maulinu nema einhver bjóði sig fram í að hita súkkulaðið.
Endilega fjölmennum og eigum afslappað kvöld, hlæjum og segjum sögur og flettum fallegum myndum. Fáum okkur kaffi og með því og höfum smá jólastemmningu.
Bestu kveðjur,
Hilmar Friðjónsson
Formaður ÁLKA

