Hittingur þriðjudaginn 18. nóvember kl. 19:30.
Við förum í heimsókn í hús björgunarsveitarinnar Súlna þar sem skoðaður verður dróni sveitarinnar, undir leiðsögn Auðuns Níelssonar ljósmyndara og björgunarsveitarmanns með meiru.
Heimsóknin er á dagskrá 18. nóvember og munum við hittast við húsið (Hjalteyrargata 12) kl. 19:30.
Þetta er heimsókn sem enginn áhugamaður um dróna ætti að láta fram hjá sér fara því hvort sem dróninn er lítill eða stór þá eru sömu lögmál sem gilda þegar kemur að fljúga þeim. Björgunarsveitadróninn er í stærri kantinum og það gerist ekki á hverjum degi að við fáum að skoða slíkt tæki í návígi. Við skulum gera ráð fyrir skemmtilegu kvöldi í góðum félagsskap.
Engin ummæli enn

