Góður fundur með Lindu og Benna

Góður fundur með Lindu og Benna

Fundurinn í kvöld var mjög áhugaverður og ágætlega sóttur. Linda Ólafsdóttir færði rök fyrir því hvers vegna hún myndar eingöngu í jpg en ekki raw og spunnust af því fróðlegar umræður um myndvinnslutækni. Enginn náði þó að sannfæra Lindu um að nauðsynlegt væri fyrir hana að nota raw-myndasnið til að vinna með og niðurstaðan var kannski bara sú að reynsla og þekking ljósmyndarans vegur þyngra en víðtækari möguleikar í eftirvinnslu.

Benedikt Sigurgeirsson frá ljosmyndaprentun.is sagði frá fyrirtæki sínu og helstu viðfangsefnum. Þau eru fyrst og fremst að prenta gæðaprent fyrir fagfólk og nota til þess besta fáanlega tækjabúnað, blek og pappír. Benedikt sagðist ekki hafa tölu á fjölda pappírstegunda sem þau byðu upp á en kom með sýnishorn af myndum prentuðum á alls konar pappír til að leyfa fundarmönnum að þukla á og skoða. Einnig var rætt um snið á myndaskrám, litgreiningu og fleiri áhugaverð tækniatriði.

Þetta var sannarlega áhugaverð og fræðandi kvöldstund og eru þeim Lindu og Benna færðar bestu þakkir fyrir sín erindi.

Fyrirlesarar kvöldsins

Linda og Benni að ofan - hluti fundargesta að neðan.

Hluti fundargesta
Engin ummæli enn
Leit