Andlitsgreining mannamynda með gervigreind - fyrirlestur 7. maí

Andlitsgreining mannamynda með gervigreind - fyrirlestur 7. maí

Hörður Geirsson fjallar um verkefni við að nafngreina óþekkt fólk á ljósmyndum Önnu Schiöth með aðstoð gervigreindar

Sæl,

nú boðum við til hittings/fyrirlesturs, miðvikudaginn 7. maí nk. kl. 19:00. Staðurinn er VMA (gengið inn að vestan).

Efni hittingsins er algerlega í anda þess sem er að gerast í ljósmyndaheiminum í dag, í senn spennandi og áhugaverður:

Andlitsgreining mannamynda með gervigreind

Fyrirlestur Harðar Geirssonar, safnvarðar Ljósmyndadeildar Minjasafnsins á Akureyri

Í fyrirlestrinum verður fjallað um verkefni sem fólst í að safna saman ljósmyndum Önnu Schiöth ljósmyndara á Akureyri úr flestum söfnum landsins og að láta síðan gervigreind hjálpa við að nafngreina óþekkta einstaklinga á ljósmyndunum.

Anna Schiöth f. Larsen var ljósmyndari Akureyringa í 20 ár frá 1878 til 1898, og myndaði mjög marga Norðlendinga sem áttu leið um Akureyri þessa áratugi. Myndir hennar hafa varðveist vel sökum þess að hún hafði ljósmyndatæknina á sínu valdi, notaði góð efni og var vandvirk. Síðustu rúm 20 ár ævinnar helgaði hún Lystigarðinum á Akureyri.

Fyrirlesturinn er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar á þessu ári.

Meðfylgjandi mynd er búin til af gervigreind (ChatGPT).

Engin ummæli enn
Leit